Gisting á Erpsstöðum
Um gistingunaÁ Erpsstöðum er leigt út eitt 82fm. hús. Húsið var byggt árið 1961 og endurnýjað 2004 og hefur verið leigt út frá þeim tíma til ferðamanna. Húsið er leigt út allt í einu og hentar vel fyrir fjölskyldur eða litla vinahópa. Ekki er boðið uppá morgunmat né aðra málsverði.
Það fer vel um 6 fullorðna í húsinu og fleiri ef börn eru með í för. Það eru þrjú svefnherbergi í húsinu, þar af eitt með hjónarúmi og þá tvö með tveimur einsmanns rúmum. Tvö af rúmunum eru með útdraganlegum beddum sem henta yngri börnum. Barnarimlarúm er í húsinu og aukadýnur. Rúmgott baðherbergi með sturtu og þvottavél er í húsinu ásamt ágætis eldhúsi með öllum nauðsynlegum nútíma tækjum. Það er 50 fm. verönd við húsið, með borði, bekk, gasgrilli og heitum potti. Húsið er staðsett uppi í hlíð um 500 m. frá íbúðarhúsi og gripahúsum ábúðenda. Því er gott næði og lítil umferð við húsið og gott útsýni yfir Hvammsfjörðinn. Það eru 16 km. í næstu verslun og veitingastað í Búðardal. Gönguleiðir um umhverfi staðarins eru skemmtilegar. Hægt að feta upp á Sauðafellið, sem bærinn stendur við eða labba niður með Miðánni sem liðast um dalinn. Á Erpsstöðum býr 7 manna fjölskylda með 70 mjólkurkýr auk um 130 annarra nautgripa. Á bænum eru einnig hestar og kindur auk smádýra; hænsna, kanína og naggrísa. Gestum er velkomið að kynna sér búskapinn; labba um fjósið og fylgjast með mjöltum ( sem mjaltarobot framkvæmir). Vaxandi heimavinnsla (Rjómabúið) hóf starfssemi sumarið 2009 með rjómaís sem seldur er í lítilli móttöku í fjósinu. Framleiðslan hefur undið uppá sig og núna er framleitt skyr, rjómi, ostur og skyrkonfekt. Móttakan í fjósinu eru opin 1. júní - 15 sept frá kl 13-17. Þetta er skemmtileg gisting fyrir barnafjölskyldur og það að komast í návígi við húsdýr er bónus fyrir börnin. Erpsstaðir standa við Vestfjarðaveg nr.60 um 25 km frá þjóðvegi nr.1 |
VerðskráVerðskrá vetur jan-maí og sept-des
1 nótt kr 14000,- 1000,- leiga á sængurfötum og handklæði pr mann 5000,- þrif á húsinu ef óskað er eftir því. Húsinu skal skilað hreinu eins og við því er tekið. Tilboð ef gestir dvelja 4 nætur eða lengur er verð pr nótt 10000,- Verðskrá sumar júní-ágúst 1 nótt 16000,- 1000,- leiga á sængurfötum og handklæði pr mann 5000,- þrif á húsinu ef óskað er eftir því. Húsinu skal skilað hreinu eins og við því er tekið. |
