Um heimavinnsluna
Þann 1. janúar 2010 tók Rjómabúið Erpsstaðir formlega til starfa. Þar er framleiddur rjómaís, skyr ostar og konfekt.
Framleiðslan fer fram á býlinu sjálfu í 200fm. aðstöðu, ætluð fyrir heimavinnslu afurða. Eigendur eru menntaðir mjólkur-fræðingar. Unnið er samkvæmt lögum sem heimila vinnslu og sölu landbúnaðarvara beint frá býli. Ísinn: Ísinn er framleiddur úr mjólk og rjóma ( 40% ), sykri, eggjarauðum og bragðefnum. Ferskir ávextir og ber eru notuð í þær bragðtegundir sem innihalda slíkt bragð. Enginn e-efni eru í ísnum. Mjólkin og rjóminn eru úr kúnum á Erpsstöðum. Eggjarauðurnar eru frá Nesbú, sykur og bragðefni koma að mestuleyti erlendis frá. Ísinn er gerilsneyddur; það ferli fer fram í ísgerðarvélinni en vélin byrjar á því að hita ísblönduna í 84 gráður áður en blandan er þeytt saman. Konfektið: Skyrkonfektið er hágæða sælgæti, húðað Valrhona súkkulaði og fyllt með heimalöguðu skyri frá Rjómabúinu á Erpsstöðum. Skyrkonfektið var sérhannað og þróað af þverfaglegu teymi Stefnumóts hönnuða og bænda fyrir Rjómabúið haustið 2009.Nýverið útnefndi tímaritið Reykjavík Grapevine Skyrkonfektið frá Rjómabúinu á Erpsstöðum í Dölum vöru ársins. Myndband af gerð konfektsins má finna hér. Smella. |
Vörur & verðÍS
Að jafnaði er til rjómaís með eftirfarandi bragðtegundum: Vanilla, karamella, piparminta, pistasia, kókos, lakkrís, súkkulaði, amarettó, hreinn rjómaís, íslensk aðalbláber. Einnig jarðarberja sorbet ( mjólkur og eggjalaus ís ). Um jól er fjölbreyttara útval í boði, m.a. áfengur rjómaís en hann er um 20 % dýrari. Verð og einingar: 150 ml - 400 kr. 500 ml - 800 kr. 1000ml - 1300 kr. 2500ml - 3200 kr. KONFEKT Framleitt er einstakt konfekt úr skyri. Konfektmolarnir eru stórir og henta sem saðsamir bitar milli mála. Verð og einingar: Skyrkonfekt 1 stk - 350 kr. Skyrkonfekt 6 stk í gjafaöskju - 2000 kr. Magnkaup; ef keyptir eru fleiri en 25 molar kostar stk. 270 kr. OSTAR Kúmenostur 4200 kr/ kg, vigtaður og plastaður í 200-300 gr stykki Grikki, ostur í teningum, kryddaður í olíu. 100 gr - 400 kr AÐRAR VÖRUR Sveitaskyr 400 gr - 350 kr. Sveitarjómi 280 ml - 400 kr. Broddmjólk, frosin 500 ml - 400 kr. Mysa 5 lítrar í brúsa - 500 kr. Heimagerðar sultur, verð 400-800 kr krukkan fer eftir magni. |

